laugardagur, ágúst 07, 2004

jáuuu ég ætlaði bara að benda fólki á að það eru komnir nokkrir nýir linkar ef þið skiljið hvað ég meina...
"monica, pigeons learn faster than you!"
nei já þetta eru skemmtilegar síður. ég er samt að pæla í að fara kannski að raða bloggunum niður eftir mikilvægi eða bloggtíðni... það er samt svona smá samasem merki þarna á milli þar sem há bloggtíðni getur skipt höfuðmáli í mikilvægi bloggsins. allavega fyrir megabloggnörd eins og mig. eða ég meina ekkert endilega... stundum eru bloggin bara svona skemmtileg að þau eru mikilvæg þrátt fyrir lága bloggtíðni... æji... bla.

það er kominn nýr klúbbur. megabloggnörd púnktur is skástrik jejeje.
(það er sko ekkert nýr klúbbur, ég var sko bara að plata... en það ætti að vera til.)

ég vil líka benda á mjög fyndnar og hressandi pælingar hjá heimi (já núna vil ég gera link á heimi (http://folk.is/heimirbjejod/), í eina skiptið sem ég geri link, eða allavega hef ég ekki gert link lengi... en nei þá virkar þetta drasl ekki. en ég er samt yfirleitt mjög góð að gera linka! því ég er tæknilega sinnuð *bjarkarsvipur*). getur verið ágætis afþreying að lesa þessa steypu.
varúð: getur valdið hlátri.

péss mig langar í kók. vill einhver gefa mér?

Engin ummæli:

 

© Stefanía 2008