þriðjudagur, ágúst 24, 2004

en pirrandi hægt net. núna er ég búin að svara bréfinu hennar dagnýjar.

ég þarf að læra heima. bara lesa samt. lesa soldið leiðinlegt efni og ég get engan veginn haldið einbeitingu við það. ég reyndi smá að lesa það í skólanum í dag þegar ég var ótrúlega einmana og fann engan til að sitja með í nýja skólanum mínum. en það var of mikið að gerast í kringum mig svo að ég gat ekki einbeitt mér að þessu.
strákar að hnoðast á öðrum strákum. strákar að öskra í tölvuleikjum. já þetta er svona nokkurn veginn aðaltruflanirnar sem tókst að afvegaleiða mig frá lestrinum. líka það að þetta er mjög óáhugavert.

núna ætla ég að fara að horfa á catching void. ER ÞAÐ? ég hef ekki hugmynd um hvort titillinn er skrifaður svona eller hvad. en allavega eitthvað sirkabát svona. svo ætla ég að læra og fara snemma að sofa. MEIKING IT.

kegs.

Engin ummæli:

 

© Stefanía 2008