fimmtudagur, desember 04, 2008

Litir dagsins eru sterkari en aðra daga; sólin er gulari (eitthvað finnst mér þetta dularfull stigbeyging), sjórinn og himinninn eru kóngablá, göturnar eru óvenju dökkar, skýin eru bleik, frosna grasið er grænt, húsin eru áberandi og svo framvegis. Ekki veit ég hvað veldur en það er fallegt.

1 ummæli:

birta sagði...

ó, það er svo yndislegt þegar manni finnst allt vera í sterkari litum en venjulega. mér finnst alltaf allt vera í sterkari litum á húsavík á sumrin, enda er mjög fallegt þar á þeim tíma árs.

 

© Stefanía 2008