miðvikudagur, janúar 06, 2010

Birtir til?

Skyndilega líst mér vel á komandi önn. Hún verður erfið en ég er bara tilbúin í að taka þátt í önninni. Í fyrsta skipti síðan ég byrjaði í Háskólanum ætla ég ekki að taka þátt í kosningabaráttu Röskvu; þar liggja margar ástæður að baki. Meðal ástæðna er að sjálfsögðu að árangur minn á vorönn hefur aldrei verið uppá marga fiska og jafnvel mætti segja fáa fiska, vegna þess að þær annir hef ég alltaf byrjað á kosningabaráttu fyrsta eina og hálfa mánuðinn. Það tekur sinn toll frá námi. Að þessu sinni er ég ekki í neinu öðru en skóla. Ég hræðist allt auka, enda forðast brennt barn eldinn.
Önnur ástæða fyrir stúdentapólitíkur-grænu-bólunum mínum er einfaldlega að ég hef misst trú á því að mannkynið geti tekið saman höndum og unnið saman að einhverju frábæru. Við erum svo hrokafull og gráðug að það hálfa væri meira en nóg fyrir fimmtíufalt mannkyn. Mig langar að taka þátt í samfélagi þar sem fólk tekur tillit til hvers annars og umhverfisins í kringum sig. Mig dreymir um að vera Neytiri í Avatar og ég hef engan áhuga á að taka þátt í samfélagi vestrænna þjóða þar sem gengið er út frá því að gróði verðmæta skipti gríðarlegu máli fyrir afkomu okkar.

Þrátt fyrir þessa skoðun og löngun get ég ekki barist fyrir breyttu viðhorfi í pólitík því ég hef enga trú á því að þvinga fólk til að gera það sem það hefur ekki trú á. Það er það sem vestrænar þjóðir gera við þá sem eru aðeins tengdari fólkinu og náttúrunni í kringum sig; reyna að þvinga þá til að fórna því sem þeir hafa trú á, fyrir verðmæti í jörðinni. Ég hef ekki trú á því að þvinga megi fólk til eins eða neins og vestrænar þjóðir munu alltaf innihalda fólk sem hugsar einvörðungu um sjálft sig.
Ef ég fæ einhvern tímann að lifa í litlu samfélagi manna sem eru vinir, þar sem goggunarröðin er virt (því hún verður sennilega að vera til staðar ef samfélagið á að þrífast (á samt eftir að velta því aðeins betur fyrir mér)), græðgi kemur ekki í veg fyrir samstarf og tengsl okkar við náttúruna eru nýtt - þá vil ég að það sé þannig að allir sem tilheyra samfélaginu séu tilbúnir að taka þátt í því, það gengur aldrei sé einhver tilneyddur.

En kannski verður alltaf einn Skari bróðir í hverju samfélagi.

6 ummæli:

Olga sagði...

ég vil búa á Pandóru

Stefanía sagði...

Verðurðu þá mamman?

olga sagði...

mögulega. eða Bandaríkjamaðurinn sem kemur og reddar málunum

Viktoría sagði...

Stefanía.
sæl.
þakk fyrir síðast.
ég er samt ekki smámælt þó að ég skrifi þakk.
vildi bara hafa það á hreinu.
blogg eru 200010 í mínu héraði eða stræti og þessvegna hef ég kveikt í mínu bloggi.
eða eitthvað.
ég hef lengi lesið þitt.
mér líður eins og pennavini árið 1992.
bæbæ. viktoría

Nafnlaus sagði...

Má ég vera með á Pandóru? Ég skal bara eiginlega vera hver sem er... eða kannski bara fiðrildi eða eitthvað sem líkist því? Já ég held það.
Inga Vala

steiniofur sagði...

a) Þessi önn sökkaði vegna leti
b) Mannkynið mun aldrei lifa í sátt við umhverfið nema það útrými umhverfinu eða sjálfu sér - í Avatar hefði hver heilvita maður sagt Nuke'em from outer space
c) Skari bróðir, Stóri bróðir, Steini bróðir

 

© Stefanía 2008