fimmtudagur, ágúst 26, 2004

obbosí ég gerði óvart púnktur is skástrik linkinn hennar bjarkar vitlausan. villan var eftirfarandi:
púnktur komm í stað púnktur net.

fara að sofa bless.

péss akureyri bíður mín. ekki satt? spennt? jámm.

þriðjudagur, ágúst 24, 2004

en pirrandi hægt net. núna er ég búin að svara bréfinu hennar dagnýjar.

ég þarf að læra heima. bara lesa samt. lesa soldið leiðinlegt efni og ég get engan veginn haldið einbeitingu við það. ég reyndi smá að lesa það í skólanum í dag þegar ég var ótrúlega einmana og fann engan til að sitja með í nýja skólanum mínum. en það var of mikið að gerast í kringum mig svo að ég gat ekki einbeitt mér að þessu.
strákar að hnoðast á öðrum strákum. strákar að öskra í tölvuleikjum. já þetta er svona nokkurn veginn aðaltruflanirnar sem tókst að afvegaleiða mig frá lestrinum. líka það að þetta er mjög óáhugavert.

núna ætla ég að fara að horfa á catching void. ER ÞAÐ? ég hef ekki hugmynd um hvort titillinn er skrifaður svona eller hvad. en allavega eitthvað sirkabát svona. svo ætla ég að læra og fara snemma að sofa. MEIKING IT.

kegs.

mánudagur, ágúst 23, 2004

jæjamm. fyrsti skóladagurinn í dag. hann var bara mun skemmtilegri en á horfði. ég á strax þykjó kærasta. en það var samt bara brandari. en það var samt fyndið. og já uuu ég sit á sviðinu í norðurkjallara... svöl eða? hmm já!

nei svona virkar þetta víst í emmhá. ég er ekki alveg komin með þetta á hreint ennþá. allavega veit ég að fatahengisborðin eru ekki hátt sett og norðurkjallari er það.

nei já eftir fyrsta skóladaginn þá líst mér bara mjög vel á emmhá svokallaðan. ég frétti að þar ætti ég að vera með helgu í skóla. HELGAAA. hún er frönsk.

vá hvað ég er orðin leiðinlegur bloggari. ég hef ekkert að skrifa um. ælælæl. kambur. það er fjall. á gjögri.

já u fyrir þá sem vilja vita er planið helst að koma norður næstu helgi. það verður alveg mega. megadjamm að vanda. og svo aftur í september. dagný verður að hýsa mig. nú eða annar. sem er sætur. sætur eins og sykur. nei hann er sætur eins og villt skógardýr sem borðar menn í morgunmat.

þessi helgi var annars svakó. maður var smá skammaður. af föður og gangandi. áfengið kannski í aðeins meira lagi. en síðan hvenær hefur það gert nokkrum mein?
ég átti nú samt eina villtustu nótt lífs míns nóttina fyrir mennó. nei grín. ekki satt. ekki satt. lygi.
ú nú vitiði ekki hvort ég sagði þetta svona oft af því ég var að leggja áherslu á það að ég hafi ekki átt villtustu nótt lífs míns nóttina fyrir mennó eða hvort ég sagði þetta af því ég átti hana og ég sagði að grínið væri ekki satt, svo sagði ég að það væri ekki satt, svo að það væri lygi. þannig að spurningin er:
átti ég villtustu nótt lífs míns nóttina fyrir mennó?
spurning... sennilega ekki samt.

menningarnóttin var ekki mjög sérstök. dóp is all around durururururu (sungið við lagið love is all around). það er alveg ömurlegt maður. dópíngdóp.

jæja núna ætla ég að fara að svara ímeilinu sem dagný sendi mér. það var frábært að fá ímeil frá þér. geggjað skemmtilegt ímeil. ég elska þig.
(bara svona þakka fyrir það opinberlega... sýna hversu mikið ég elska þig)

kegs.

föstudagur, ágúst 20, 2004

jæja. þetta er nú alveg skítt.

mig langar bara að búa á akureyri. óóóó.

mar. segi ég nú bara. mar eftir hvað? mar á sálinni eftir angistina. angist þess að yfirgefa fólkið mitt. ég sakna ykkar. alveg einstaklega leiðinlegt að fara frá mögulega tilvonandi krúttrassgatinu manns. það er það ömurlegasta af þessu öllu saman.
s o s tur. svoooo.

átti samt gott spjall við föður minn í kvöld. því fylgdu nokkur óvænt tár sem voru alls kostar óvelkomin. hann sannfærði mig nokkurn veginn um að ég sé að gera hið rétta með því að vera hérna hjá fjölskyldunni minni. uppbygging. uppbygging er málið. tína saman brotin. greiða úr flækjunni. einfalda lífið. það er allavega á hreinu að leiga á herbergi skástrik íbúð væri svo sannarlega ekki einföldun á lífinu, hvort sem ég þarf á einföldun að halda eður ei.

palli megayndi kom heim frá útlöndum í dag, ásamt fjórum öðrum ungum piltum sem vert er að nefna: gorgeir, guðlaugur, aron og annar palli. párl sædi færði mér ilmvatn í vínrauðum poka. uppáhaldslyktin mín. i will borg you with tykifyre.

þið verðið að afsaka bloggleysi mitt. ég bið forláts. ég er búin að standa í tímafrekum aðgerðum svosem flutningum og undirbúningi skástrik upphafi kvalar og pínu sem felst í 389 kílmómetra fjarlægð frá rúmum. sama rúm? tjah það væri skemmtilegra.
oj þetta kemur á besta tíma NEI (tileinkað stefáni kenndum við tónlistarstefnuna mjaðmahopp (þ.e.a.s. NEI-ið)). fokkíng ömurlegur tími. aaaandvaaaarp.

mér er að takast sló and slólí að koma mér fyrir. eða nei reyndar var ég bara að fá draslið mitt þannig að ég get nú ekki sagt að ég sé mikið byrjuð á því. þarna skaut ég mig alveg í fótinn krakkar mínir. verst að ég er bara ekkert með fætur til að skjóta mig í þannig að þetta orðatiltæki bara gengur ekki við mig.
grín ég er með fætur. heppin.

oh drulluhórumsnið mitt virkar ekki. mitt innan gæsalappa kannski frekar.

en jæja,
kegs.

mánudagur, ágúst 16, 2004

-knock knock
-who's there?
-david e. kelly
-david e. kelly who?

slurp slurp

hvísl:
-i love you so much
-*þef* did you just fart?
-no
-oh... i wish i could turn back time and not ask you that and not ruin the moment
-trust me, you didn't ruin anything

slurp slurp

http://sickanimation.com/knock.html
fokkíng ógeðblogg. færslur sem detta út eru ömurlegar.

innihald í styttra máli:
mig langar í eggjadýnu og það sem er í henni. ég hef áhyggjur af því að verða aumingjabloggari. ég er þreytt því ég er búin að sofa svona átta tíma síðan á fimmtudaginn. ég nenni ekki að blogga meira.

kegs.
ýkt.

ýkt.

jæja. þetta var svakahelgi. þriggja daga djamm. þrír dagar síðan ég hef hitt rúmið mitt almennilega. ég sakna þess ekki neitt. mig langar bara í eggjadýnu. eða eitthvað þannig... sem er ótrúlega þægileg. langar mig líka í það sem er ofan á dýnunni? mjámm. mjááá kisikisikis.

ég er þreytt. ég er búin að sofa lítið. svona kannski átta tíma síðan á fimmtudaginn. ef svo mikið. þá vitiði þaaaaað. nenniggjað blogga meira... obbosí... ætli ég verði aumingjabloggari? og koxi á bloggstemningunni sem ríkir í hjarta mínu? tjah (tileinkað guddamagg), maður spyr sig.

omm.

kegs

föstudagur, ágúst 13, 2004

jæja. megadjamm hjá mér og oddsa í gærkvöldi. kvöldið leit ekkert frábærlega út, en svo rættist svona allsvaðalega úr því baramm.

was?

nei já ég keyrði með ingu, tókum einn í bæinn, eftir pælingar sem við komum aftur að síðar, sá odd, stökk útúr bílnum til að knúsa odd, knúsaði odd, við duttum því oddur var svo drukkinn að hann dró mig með sér niður og ég setti næstum því hendina í hráku með svona fjögurra sentímetra ummáli. það var nú stemning. endaði svo hér í húsum portúgalanna chillin and grillin avec oddur jóhannn. með bjór í hönd og
rís - þúttða alltaf skilið.

pælingin: af hverju eru sett grjót á mitt hringtorg? það er asnalegt... býður uppá harkalegt crash bomm pang donk. alveg nóg að hafa svona háa kanta og blómabeð til að koma í veg fyrir að fólk keyri eitthvað þarna yfir... þarf ekki grjót sem eru stórhættuleg... en jæja. þökkum ingu völu fyrir sitt innlegg í samfélagið með þessum hátæknipælingum.

kegs.

þriðjudagur, ágúst 10, 2004

vakna klukkan níu í fyrramálið. ó hvílíl grimmd og ómannúð. og til hvers? til þess að henda drasli sem ég nota ekki til þess að geta farið að pakka...
tekur nú ekki svo mikinn tíma.

sofa? kannski bara.

ég keypti mér kjól og perlufesti. rennilásinn á kjólnum bilaði áður en ég hafði farið í kjólinn. hvað gera gosframleiðendur þá? ég veit það ekki en ég ætla allavega ábyggilega að fara með hann aftur niður í frúnna í hamborg og biðja þær að gera við hann.

ég vil ekki henda öllu "draslinu" mínu... eins og tússtaflan þar sem svo margir eru búnir að kvitta... og flöskusafnið mitt. ég hefði heldur ekki viljað henda skiltinu mínu stóra. og allt draslið bara... allir símarnir mínir. geisladiskarnir uppá vegg sem ég og dagný lékum okkur að því að kyssa með bleikum varalit. fjölskyldugarðsökurskírteinið mitt. svarthvítu myndirnar á hurðinni minni. greinin um ellefu staðreyndir um kynlíf.

vá ég er að tala við helgu lúsí andreij gunnarsson á msn í þessum skrifuðu orðum. ég fæ að sitja í norðurkjallara á fyrstu önninni minni í mh og ég veit strags að skammstöfunin fyrir hann er nkj. er ég svöl eða? u já. og ég fékk allt í einu rosalega "vó ég er að fara í mh eftir nokkra daga"-tilfinningu skástrik sjokk.

mig hefur dreymt um að fara í mh frá því að ég vissi hvað menntaskóli væri... svo flutti ég til akureyrar sumarið fyrir tíunda bekk. þá var ég kareisí. og skar út nafnið mitt í hendina á mér með skrúfblýanti heh. það var nú skemmtilegt fyllerísatvik. ótrúlegt en satt þá fór örið eftir tvö ár eða svo... en allavega þegar ég flutti þá hætti ég að pæla í möguleikanum að flytja aftur suður. þar til núna í vetur. og núna er draumurinn að rætast. viiiiljiði pæla.
samt langar mig að útskrifast úr ma... kannski ég geri bara bæði... útskriftirnar eru ekkert á sama tíma.

mig langar að horfa á friends. og mig langar sjúúúklega mikið í franskar með tómatsósu. nammmminamm.

jæja góða nótt. ég ætla kannski í sturtu og kannski að fá mér heilsustaut og kannski að fá mér eitthvað að borða og kannski að horfa á friends. en kannski geri ég ekkert af þessu.

kegs.

sunnudagur, ágúst 08, 2004

jæja. þá er maður enn og aftur kominn heim í heiðardalinn. þetta var ágætiskvöld. ég slóst við dagný. og beit hana í brjóstið. það var mjög gaman. hún kleip mig. ég fæ áreiðanlega marblett eftir klipið.
handfylli? ja maður spyr sig.

viltu serjós?

núna er klukkan níu og ég er ósofin. ég ætlaði að fara snemma að sofa. en ég gerði það ekki. ég ætla samt ábyggilega að horfa á stellu í framboði. fólkið sem ég bý með leigði hana nefnilega á bókasafninu. mig er lengi búið að langa að sjá hana. þessi setning lítur út eða hljómar eitthvað svo málfræðilega vitlaus. ætli hún sé kolvitlaus? ja maður spyr sig. en núna nenni ég ekki að pæla í því. kannski fæ ég ábendingar um gríðarlega villu en þá laga ég hana bara þá... kannski... en kannski ekki samt. kannski verður mér bara alveg sama. þrátt fyrir það að ég sé mjög málfræðilega sinnuð.

jæja bless kegs. eða blæ eins og skotarnir segja (þeir segja það ekki neitt það er bara fyndið að segja "eins og skotarnir segja").
 

© Stefanía 2008