fimmtudagur, maí 06, 2004

already we'll all float on all right already and we'll all float on all right don't worry even if things end up a bit too heavy...

ahhh þetta er svo ótrúlega ljúft lag. ég er búin að vera með float on á repeat í tölvunni alltaf þegar ég er í henni síðustu fjóra daga! ég eeeeelska þetta lag það er svo frábært að ég gæti ælt á fólk. takk fyrir.

passið gekk bara vel. maður eldaði og gekk frá eftir eldið og svo litaði maður og svo tannburstaði maður og skipti um föt og skipti um bleyju og skeindi og las og fór svo í tölvuna á meðan þetta pakk svaf.

eldur. fire. iron. járnsmiður. kúbein. glóð. sígaretta. krabbamein. hósti. reykur. eldur.

hringrás eldsins? neibb... heh, en eitthvað samt.

bless kex.

miðvikudagur, maí 05, 2004

til hamingju með afmælið mamma og steini :) þrjú ár, ágætis áfangi.

nú er maður að fara að passa litlu gemlingana svo þau komist frá þessum geðspítala eitt kvöld :) excellent. þetta eru náttúrulega brjálaðir krakkar. ein næstum tveggja ára, ein fimm ára og ein næstum ellefu... allar jafngeðveikar, bara á sinn hátt. eins og restin af fjölskyldunni bara.

þar sem ég kann ekki að elda þá hitaði mamma uppstúf og karteflur í potti og ég þarf að hita bjúgu í potti... áskorun. ætli ég standist? nú er bara að bíða og sjá.

svo sendir maður þetta fólk í rúmið klukkan átta-hálfníu, þá elstu inní herbergi, og hefur svo íbúðina fyrir sjálfan sig. ætli ég fái heimsókn frá ljúflingnum mínum? hmh... ég býst nú ekki við að hann nenni að mæta, fyrir utan það að hann er að fara í fyrsta og eina prófið sem hann fer í á morgun. en ekki missa vonina stefanía. KANNSKI!

en bless kex, ég ætla að fara að hita bjúgu.

þriðjudagur, maí 04, 2004

dunn dudunn tss dunndudunn tss dunn dudunn tss svo trommurnar og gítarinn og svo gítareffectið dándándándándándán
i backed my car into a cop car the other day well he just drove off sometimes life's okey...

yndislegt lag. það heitir float on og er með modest mouse. frábært frábært. ég vil þakka mister fireiron fyrir að kynna mig fyrir því.

ég var að ljúka við að horfa á finding nemo. hún er frábær. góður boðskapur og allt stórkostlegt. svo eru líka gúbbífiskar í þessari mynd og það er náttúrulega nóg til að gera hana frábæra.

viltu kakóblað?

hmh ég er farin að læra fyrir líffræðipróf vonandi skemmtið þið ykkur við ekkert. bless kex.

mánudagur, maí 03, 2004

heh ég er þá semsagt búin að breyta þessu eitthvað rugl...
mig langar að setja commentakerfi líka og breyta þannig að archive sé ekki BLÁTT hóruógeð... en jæja... ég fæ einhvern snilling að sjá um það fyrir mig og þangað til verður þetta bara ógeðslegt...

takk fyrir bless.
kannski maður ætti að fara að laga eitthvað til á þessari blessuðu bloggsíðu. heh ekki að það skipti neinu máli, samt betra að hafa allt á hreinu sko... allir linkar og svona fínerí. allir búnir að breyta um blogg nefnilega. þannig er það nú.

allir bloggarar í tilvistarkreppu og trúa ekki á blogghæfileika sína og halda að enginn lesi síðuna þeirra. þetta er nú leiðindarvesenið.
þar sem ég er hvorki með gestabók né commenta kerfi þá get ég engar sannanir fengið fyrir því að einhver lesi þetta. en jæja. ég veit þó að dagný les bloggið mitt. takk fyrir það dagný.

hmh... gaman að þessu.

í sumar er mamma að fara að flytja til reykjavíkur og þá leigi ég eða fer á heimavistina... það verður erfitt en ljúft að standa á eigin fótum.
uppgjöf á náttúrufræðibraut næsta vetur er líka handan við hornið sökum áhugaleysis, metnaðarleysis og leti. við tekur svo félagsfræðibraut. þannig að annar eff aware, here i come.

jæja krakkar mínir ég er þá farin að breyta einhverju á þessari síðu og elska fólk. gaman. ég er líka farin að kannski horfa á survivor og fara til svenna. ég elska ykkur öll. nei ég vil ekki ljúga ég elska alls ekki ykkur öll ef ykkur öll þýðir þið öll "out there"... en ef þið öll þýðir þessir tveir sem lesa bloggið mitt (ég er með dagný og björk í huga) þá get ég alveg sagt ég elska ykkur öll.

takk fyrir þetta bless kex.

sunnudagur, maí 02, 2004

ég er villt partýdýr.
já nú er ég glöð :)
mamma búin að fara með mig í brynju og dekra við mig aðeins og minns aðeins búinn að jafna sig sko.

ég fór í 50 mínútna sturtu áðan. það var rooooslega gott og gaman og bara rosalegt á allan hátt. samt þvoði ég ekki einu sinni á mér hárið með sjampói eða neitt.
heit löng sturta er betri en bað útaf dropunum. namm.

eric clapton - layla; klassískt!
já best að slaka aðeins á. á svona stundum keyrir maður á 130 km hraða niðri á eyri á götunni sem ég veit ekki hvað heitir sem nær eiginlega alveg frá ljósunum hjá rúntinum og að brekkunni sem maður beygir upp áður en maður keyrir útá krossanes... samt keyrir maður bara svona hratt á partinum sem nær sirka frá götunni sem gatan mín liggur úr og að sirka endanum á verksmiðju svæðinu, svo beygir maður inn einhverja götu þar (sirka í endanum á verksmiðju svæðinu) og snýr við á einhverju bílastæði og heldur svo til baka og keyrir aftur jafnhratt. djöfull er gott að gera svoleiðis.
það væri ekki gaman að mæta löggunni í svona ástandi.

já stundum er fólk pirrað. þá er aðeins eitt hægt að gera til að verða eðlilegur aftur það er að fólkið sem pirrar mann sleikir mann upp. eina sem virkar. því mann langar ekki neitt að verða glaður því viðkomandi pirraði mann og maður gleymir ekkert svoleiðis. þetta á sérstaklega við þegar þessi athöfn gerist endurtekið, þ.e.a.s. viðkomandi pirrar mann aftur og aftur. en þar sem það gerist aaaaldreiiii að viðkomandi sleiki mann upp að þá verður maður að vera pirraður því að það er hnútur í maganum á manni sem lætur mann bæði langa til að öskra og grenja og ráðast á allt og alla í kringum mann og skemma eitthvað sem viðkomandi pirrari hefur gefið manni.

jæja núna er mamma að fara með mig eitthvert "bara við tvær"... spennandiiii
fokkíng fokk andskotans fokkíng helvítis fokking fooooooooooooOOOOOOOOOOOOOOOO OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOKKKKKKKKKKKKKKK fokk fokka fokkíng fokkíng ógeðslega ÓGEÐSLEGA HÓRUÓGEÐSLEGA ÓÓÓÓGEEEEEEEEEEEÐ andskotans ógeðslega fokkíng sjitt.

laugardagur, maí 01, 2004

í gær hélt ég saumaklúbbinn minn. hann samanstendur af mér, dagný, ingu, olgu og síðast en alls ekki síst björk. björk reyndar beilaði á okkur í gærkveldi. ömurlegt. maður á alltaf að mæta í saumaklúbba. við tókum eina dvd mynd og eina gamla spólu með sem við gátum ekki fengið hulstur með mynd á því við fundum það ekki. við báðum nefnilega um dirty dancing. en við horfðum samt ekki á dirty dancing.

dagný mætti sko til mín og við fórum útá vídjóleigu og svo komu inga vala og olga til mín og olga horfði á svona 1/5 af myndinni og fór svo heim til kæææærastans síns (ojjjj *fliiiiss*) svo eftir svona 4/5 af myndinni þá sofnaði dagný og ég og inga vorum einar eftir að horfa á matchstick men á dvd.
nú ogöhh jáogöhh jáogöhh núogöhh svo töluðum við saman um ekki neitt og slúðruðum smá eins og góðum saumaklúbbi sæmir svo fóru stúlkukindurnar heim og ég að sofaaaa.

í morgun þegar ég vaknaði horfði ég svo á dirty dancing í fyrsta skipti á ævinni. er það glæpur eða? mér er spurn. allavega varð ég fyrir vonbrigðum með þessa mynd, hún var ekki eins góð og ég hélt. en auðvitað var hún eftir fullkominni uppskrift og maður grét auðvitað tvisvar í myndinni sko.
málið er sko að þetta er stelpa sem kúkar á sig og svo skammar pabbi hennar hana fyrir það og þá fer maður að gráta og svo kemur kúkurinn og kennir pabbanum lexíu þannig að hann sér við sér og sér hvað litla stelpan hans er mikið yndi og biður hana afsökunar og hættir að "give her the silent treatment". þá grætur maður aftur af gleði þegar pabbinn er búinn að taka kúkinn í sátt, eða þ.e.a.s. að stelpan og kúkurinn séu saman.

nú á ég bara eftir að sjá flashdance. hún er líka fræg mynd en ég hef samt ekki hugmynd um hvað hún er.

já krakkar mínir, bless keeex. have it good.
 

© Stefanía 2008