fimmtudagur, mars 12, 2009

Skökk samkeppni háskóla landsins – ríkissjóður veitir meira til einkarekinna háskóla en ríkisrekinna.

Fjárframlög til háskóla úr ríkissjóði eru um milljón á nemanda fyrir hvern þann sem þreytir próf í lok annar (hvort sem hann nær þeim eður ei) – óháð því hvort nemandinn sækir ríkisrekinn eða einkarekinn skóla (skólagjaldaskóla).
Auk skólagjaldanna og ofangreindra fjárframlaga frá ríkinu mega einkareknir skólar taka við styrkjum til rannsókna frá fyrirtækjum. (Þetta getur haft áhrif niðurstöður rannsókna; rannsakendur eru háðir fyrirtækjum og þora ekki að stugga við þeim af hræðslu við að missa styrki). Einkareknir skólar hafa því meira fé á milli handanna sem þeir geta eytt í betri aðstöðu, betri kennara, rannsóknir o.s.frv. Þetta fyrirkomulag skekkir ljóslega samkeppnishæfni Háskóla Íslands því þeir sem hafa efni til geta sótt betri menntun (ég hef fyrirvara á betri enn sem komið er) fyrir aðeins meiri pening.
Þökk sé velferðarkerfi Íslendinga (mikill fjöldi framhaldsskólagenginna) – og kannski góðærinu, sem nú er liðið – getur þó nánast hver sem er numið við skólagjaldaskólana þar sem skólagjöldin eru lánshæf hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna (LÍN). Margir nota einmitt þessi rök gegn því að einkareknir skólar séu fyrir þá sem hafa efni til. Þetta er að vissu leyti rétt, en að fá lánað fyrir skólagjöldunum eykur á skuldabyrði nemenda eftir nám svo ég held það sé engin tilviljun að fög sem kennd eru við skólagjaldaskóla eru almennt fög sem koma fólki í ágætlega launuð störf svo þeir sem þurfa að greiða skólagjöld hafa efni á að niðurgreiða námslánin að námi loknu.
Hins vegar eru fög sem skila fólki í störf sem ekki gefa jafn mikið fé af sér, svo sem leikskólakennarafræði, hjúkrunarfræði, félagsfræði, heimspeki, trúarbragðafræði, o.fl., einungis kennd í ríkisháskóla Íslendinga, Háskóla Íslands. Segi mér enginn að leikskólakennarar og hjúkrunarfræðingar hafi minna mikilvægi fyrir samfélagið en tölvunarfræðingar. Að loknu námi í þessum fögum er aðeins erfiðara að niðurgreiða námslánin þar sem þessi menntun skilar fólki oft ekki í sérlega vel launuð störf. Þessi tegund faga ræki sig því sennilega ekki í skólagjaldaskólum – nema að sjálfsögðu á meðal þeirra sem hafa efni á að vippa fram nokkur hundruð þúsund krónum á önn og þurfa ekki á námslánum að halda.
Er þá niðurstaðan sú að það er allt í lagi að ríkissjóður leggi jafn mikið fé í einkarekna skóla og þá ríkisreknu svo lengi sem þeir einkareknu kenna aðeins fög sem gefa vel af sér fjárhagslega?

Þegar ég nefndi þetta við Alþingismann Sjálfstæðisflokksins var mér svarað með spurningunni: Hvaða réttlæti er fólgið í því að einn fái meiri pening úr ríkissjóði en annar, bara vegna þess að hann kaus einn skóla fram yfir annan?
Ég svaraði því þá og svara því núna þannig að allir hafa valið um að fara í ríkisháskóla Íslendinga eða einkarekinn skóla – eins og áður kom fram eru öll fög kennd við HÍ, en einungis þau sem gefa vel af sér kennd við þá einkareknu. Það er því ekkert óréttlæti fólgið í því að kjósi einhver að fara í einkarekinn skóla og borga fyrir það, fái hann minni pening frá ríkinu. Hann hefur val. Sama val og sá sem kýs að fara út að borða í hádeginu fyrir fimmtán hundruð krónur í stað þess að nýta sér niðurgreiddan mat vinnustaðarsamfélags síns – sá getur ekki gert kröfu á vinnustaðinn sinn um að niðurgreiða dýra hádegismatinn sinn. Eða hvað?

Vissulega hlýtur að vera ákveðin hvatning til framfara og gæða að hafa samkeppni – en samkeppnin verður að vera réttlát. Eins og fyrirkomulaginu er háttað núna eru einkareknir skólar samkeppnishæfari en ríkisreknir skólar og hafa meira fé til að efla nám skólans – en hafa þrátt fyrir það nákvæmlega sama öryggisnet og Háskóli Íslands! HÍ er fjársveltur og hefur verið það lengi, þessi samkeppnisskekkja skapar ákveðinn ójöfnuð m.a. á meðal þeirra sem vilja sinna störfum í heilbrigðis- og velferðarkerfinu okkar.
Er það ekki auk þess á skjön við hugtakið einkarekstur að einkarekin fyrirtæki hafi sama öryggisnet og þau ríkisreknu? Er það réttlát samkeppni í samræmi við frjálshyggju? Þarf ekki skólinn af sjálfsdáðum að gera sig það eftirsóknarverðan að það sé þess virði að greiða háar fjárhæðir til þess eins að fá menntun þaðan? Á stofnun sem eykur ójöfnuð meðal samfélagsmeðlima að hafa til þess sama öryggisnet og sú sem minnkar ójöfnuð?

Gefum okkur þó að þessi niðurstaða sé röng og eðlilegt sé að sérhver nemandi í háskóla fái jafn há fjárframlög frá ríkinu, sama hvort skólinn sem hann stundar nám við rukki inn skólagjöld (sé einkarekinn) eður ei (sé ríkisrekinn).
Nú er ástæða þess að hagstætt er fyrir námsmenn að taka námslán hjá LÍN sú að hjá LÍN eru lægri vextir en annars staðar. Niðurgreiðslan á þessum vöxtum kemur að sjálfsögðu úr ríkissjóði Íslands. Nemendur sem fá lánað hjá LÍN fyrir skólagjöldum sínum við HR, Bifröst eða aðra einkarekna háskóla, fá því, auk fjárframlaga úr ríkissjóði fyrir það eitt að þreyta próf við skólann sinn, niðurgreiðslu vaxta á lánum fyrir skólagjöldum.
Til að summera þetta upp: Nemandi í HR sem fær lánað hjá LÍN fyrir skólagjöldunum sínum fær á endanum meiri pening úr ríkissjóði heldur en nemandi í HÍ!

Ef ekki næst samstaða um þá niðurstöðu að það sé ekkert misrétti falið í því að ríkið eyði minni pening í nemanda sem kýs að fara í einkarekinn skóla (en hefur val um að gera það ekki) – þá hlýtur að nást samstaða um að misrétti sé falið í því að ríkið eyði meiri pening í þennan nemanda.

Enginn sem ég hef talað við hefur getað svarað mér þessari spurningu:
Af hverju eru fjárframlög til einkarekinna háskóla ekki minnkuð um a.m.k. það sem samsvarar útgjöldum ríkissjóðs í niðurgreiðslu vaxta á námslánum fyrir skólagjöldum?

Ég óska eftir svörum, frá hverjum þeim sem þau hafa.

5 ummæli:

Stefanía sagði...

Mér líður eins og ég sé að halda úti bloggi fyrir þig Vilhelm. Ég held þú lesir þetta einn.

OlgaMC sagði...

ef allir eiga að hafa sama rétt að stunda þann skóla sem þeir vilja, þá hlýtur það að vera þannig að aðili sem kemur af efnalítilli fjölskyldu eigi að hafa rétt til að sækja einkarekinn skóla?

ef kalli litli, sem á foreldra sem eru báðir öryrkjar, tekur þá ákvörðun að sækja HR, og fjármagnar það með því að taka lán og vinna með námi. hann vill vera lögfræðingur og hann vill útskrifast úr HR. auðvitað gætu rökin gegn því verið að kalli gæti alveg eins lært við HÍ en hann vil einfaldlega læra í HR.

ef einkareknu skólarnir myndu ekki fá þessa styrki, myndu skólagjöldin við einkareknu skólana rjúka upp úr öllu valdi, sem myndi skapa ótrúlega mikla stéttarskiptingu byggða á hvaða skóla þú ert útskrifaður úr.

það sem hins vegar skekkir þessa röksemdafærslu er að þeir sem sækja HR eru í flestum (ef ekki öllum ég þekki ekki nógu vel til) af efnamiklum fjölskyldum, svo hinir efnaminni eru ekkert að græða á þessum styrkjum. en út af því að við búum við svo ótrúlega lýðræðislegt samfélag þá þurfa allir að búa við sömu réttindi.

Ef við myndum afnema þessa styrki til einkareknu skólana gætum við látið ríka fólkið borga fullt gjald og svo nota styrkina til að styrkja efnaminni einstaklinga til náms við skólana. sem leiðir okkur aftur að því að við myndum enda eins og Bandaríkin. og hingað til ef ég ekki hitt félagshyggjufólk sem er hlynnt því að við verðum meira eins og bandaríkin.

Þetta er röksemdafærsla. Ég tek það fram að ég er ekkert sérstaklega hlynnt henni, því mér finnst asnalegt að einhverjir ríkir krakkar fái jafn mikinn pening í skólann sinn á meðan þeir sem velja HÍ þurfa samt sem áður að borga 45.000. þetta gjald ætti náttúrulega að vera núll krónur. Ef skólarnir ættu að vera samkeppnishæfir ætti HÍ náttúrulega að fá tvöfalda þá upphæð á nemanda miðað við það sem HR fær.

Það eru kostir og gallar að búa við lýðræðislegt félagshyggjusamfélag.

Stefanía sagði...

Mmm. Ég veit ekki alveg með afnám skráningagjalda. Lastu færsluna fyrir neðan? Ég held nefnilega að það sé ekki sniðugt að afnema þau.

Aðalpunkturinn hjá mér í þessari færslu var samt að ríkið eyðir á endanum meiri pening í HR en HÍ, þótt hvorki skólinn né nemendurnir sjálfir sjái þessa peninga beint. Það verður að laga þennan galla á kerfinu.

OlgaMC sagði...

já, svo var mér sagt í dag að HR fær meiri pening en HÍ. það er náttúrulega tæp pæling.

en takk fyrir að hrósa blogginu mínu.

Nafnlaus sagði...

Mjög svo sammála um að þetta sé afar ósanngjarnt.

Inga Vala

(haha staðfestingarorðið mitt var "ingalsm")

 

© Stefanía 2008