laugardagur, ágúst 07, 2004

oj nú er orðið geegt pirrandi hvernig linkarnir virka (þeas í færslunum ekki linkarnir hér til hliðar). ógeð. ef ég skrifa urlið þá birtist það en ég get ekki linkað! hversu ASNALEGT er þetta. og ef ég vil linka þá þarf ég að nota bloggerhjálpina til þess! ég get ekki bara notað html skipun. sem gerir það að verkum að linkarnir opnast alltaf í sama glugga og bloggið mitt er í, en ekki nýjum eins og ég vil hafa það... fjandi. þoli ekki breytingar.

breytingar eru af hinu slæma. <- þetta var speki í boði stefaníu.

péss ég vona að það sé til drykkjarhæft kók inní ísskáp sem ég finn mér til mikillar ánægju ef ég fer fram og athuga inní ísskáp. hvað ætli hafi annars verið í matinn heima hjá mér í kvöld? það verður gaman að vita.

góða nótt.
jáuuu ég ætlaði bara að benda fólki á að það eru komnir nokkrir nýir linkar ef þið skiljið hvað ég meina...
"monica, pigeons learn faster than you!"
nei já þetta eru skemmtilegar síður. ég er samt að pæla í að fara kannski að raða bloggunum niður eftir mikilvægi eða bloggtíðni... það er samt svona smá samasem merki þarna á milli þar sem há bloggtíðni getur skipt höfuðmáli í mikilvægi bloggsins. allavega fyrir megabloggnörd eins og mig. eða ég meina ekkert endilega... stundum eru bloggin bara svona skemmtileg að þau eru mikilvæg þrátt fyrir lága bloggtíðni... æji... bla.

það er kominn nýr klúbbur. megabloggnörd púnktur is skástrik jejeje.
(það er sko ekkert nýr klúbbur, ég var sko bara að plata... en það ætti að vera til.)

ég vil líka benda á mjög fyndnar og hressandi pælingar hjá heimi (já núna vil ég gera link á heimi (http://folk.is/heimirbjejod/), í eina skiptið sem ég geri link, eða allavega hef ég ekki gert link lengi... en nei þá virkar þetta drasl ekki. en ég er samt yfirleitt mjög góð að gera linka! því ég er tæknilega sinnuð *bjarkarsvipur*). getur verið ágætis afþreying að lesa þessa steypu.
varúð: getur valdið hlátri.

péss mig langar í kók. vill einhver gefa mér?
best að koma einhverju frá sér í orðum á meðan það er hægt. skemmtilegt að skrifa í þessu ástandi.
ég er með gæsahúð á annarri hendinni... ég veit ekki af hverju. ætli æðarnar séu þrengri þeim (mér tókst ekki að skrifa þeim fyrren í fjórðu tilraun (ég skrifaði alltaf þreim)) megin. nei ég held ekki að það sé málið. þetta er ekki einu sinni þeim megin sem glugginn er (sem ætti semsagt að vera kaldari hliðin (sem gæti útskýrt gæsahúð öðru megin)) þannig að ástæðan er greinilega ekki sú að mér er kaldara öðru megin en hinum megin. hey núna er ég með gæsahúð gluggamegin, en ekki hinum megin. þetta er alveg fokktopp.

það er svo margt svo skemmtilega tvírætt. það er mjög fyndið. mjög fyndið þegar fólk misskilur. stundum er það mjög leiðinlegt reyndar. það getur verið bæði. meira að segja bæði á sama tíma.

æji ég er að hlusta á svo gott lag sem minnir mig svo mikið á tvo ótrúlega sæta og skemmtilega stráka sem eru hressir og eru stór hluti af lífi mínu. sérstaklega annar þeirra. stór hehe.
annar sagði við þann er meiru breytti "þetta lag er til þín frá mér". mér fannst það megasætt. og fallegt að hann skipti einhvern annan svona miklu máli líka.
svartahvíta heeetjan mín (þetta er samt ekki lagið).

takk fyrir kvöldið my cracks. taki það til sín hver sem vill (sem gæti hafa átt góða stund með mér í kvöld).

og hey thugs takk fyrira fokkíng kommenta fokkíng ill línum á fokksvala bloggskrattann minn. stay cool.

þetta var grín. en það er ávallt ánægjulegt að opna bloggið sitt og sjá áhugaárangur í tölu.

bless kex.

fimmtudagur, ágúst 05, 2004

ég er ein manneskja af milljörðum sem lifa á þessari plánetu. og ég er með kvef og mér er óglatt, en margir eru að deyja. á meðan ég skrifa þessi orð eru milljónir að lifa villtu kynlífi... ég er nú samt bara hérna í herberginu mínu, að drepast úr nefrennsli og söknuði... ég sakna nefnilega. eins og margir aðrir.
ég hef aldrei upplifað að missa neinn ótrúlega nákominn mér. ég hef misst tvær langömmur sem ég þekkti ekkert sjúklega vel og einn afa sem dó úr krabbameini. það var fyrsta manneskjan sem ég grét.
ég man vel eftir deginum sem hann dó. ég var bara tólf ára. það var föstudagur. á fimmtudeginum sagði pabbi mér að daginn eftir ætlaði hann að sækja mig og fara með mig heim til afa þar sem allir yrðu því það væri kveðjustund fyrir hann.
á föstudeginum hringdi pabbi í mig til að segja mér að hann ætlaði að sækja mig stuttu síðar til að fara með mig til afa. hann var mjög þungur í röddinni þegar hann sagði mér þetta. klukkutíma síðar kom mamma heim úr vinnuni og settist niður með mér og sagði mér að afi væri dáinn.
ég gat ekkert hugsað eða sagt. ég bara grét í faðmi mömmu. ég hugsaði að ég var sár útí pabba fyrir að ljúga að mér. ég fattaði nefnilega að afi hefði verið dáinn þegar hann hringdi í mig. hann gat bara ekki sagt mér það í gegnum síma.
ég fékk ekki að kveðja afa. í síðasta skipti sem ég sá hann var hann orðinn mjög veikur. þá var ég ekki búin að sjá hann lengi og mér brá mjög svo í brún að sjá hann. hann var nefnilega alltaf maður vel í holdum, með háværa rödd og stórt bros. þegar ég sá hann í síðasta skipti var hann orðinn mjór. húðin í andlitinu á honum var orðin of stór á hann. hann var fölur og með lítið sem ekkert hár.
mér fannst ótrúlega asnalegt þegar fólk samhryggðist mér. ég veit ekki af hverju.

bless afi.

miðvikudagur, ágúst 04, 2004

veikindi eru alveg ömurleg eins og skítur og leiðinleg eins og hundur.

á dögum þar sem ég er heima vegna veikinda bregst það ekki að ég fer aldrei úr náttfötunum og fer í rauðu ullarsokkana mína og gráu risaflíspeysuna mína.

það samasem steffý er veik.

nú ætla ég að athuga hvort þátturinn hennar önnu katrínar sé á popp tíví. ég hef einu sinni séð brot úr honum. ég held hann sé á þessum tíma sólarhrings. vonandi fæ ég ósk mína uppfyllta og fæ að horfa á þáttinn hennar. geegt.
jæja. þá er ég búin að breyta smá til á blogginu mínu. bara smá breytó smeytó. sést við nána skoðun. kannski opnar maður síðuna og hugsar "hmm... þetta er nú eitthvað skrítið" en fattar ekkert hver breytingin er. en hún er til staðar krakkar mínir. leitið og þér munið finna.
neinei ekkert vera að leita þetta er nú ekkert merkilegt en mjög skemmtilegt mjááámm.

ég er farin að vera smá skotin í mjög einföldu bloggi. bara hvítur bakgrunnur með smá skrauti á (með skrauti á ég við kannski línu sem deilir niður hvar linkarnir eru og hvar færslurnar eru) og svo bara ekkert meir. mjög einfalt. flottur fontur og eitthvað svona.
já þetta er mjög óhefðbundin færsla hjá mér myndi ég segja. ekki er ég vön því að tjá mig hér um hvernig útlit mér finnst flott. en kannski maður ætti að gera meira af því. sýna áhuga í orðum. forðum.

ég fór líka einn eyjó með guddamagg. það var mjög gaman. keyrðum á tvo fugla. ég hef aldrei keyrt á nein dýr á ferðum mínum um landið (eða heiminn) og í kvöld keyrði ég á tvo!
það var rosalegt. við vorum bara chillin and grillin að keyra á pikköppnum og ég var að halla mér fram og horfa á gudda og tala við hann svo leit ég aðeins til hægri (fram á veginn) og þá akkúrat flaug fugl framan á gluggann! rosalegt. og eins og alltaf þá brást ég við með því að öskra og svo hlæja.
hlátur er mjög algeng (of algeng?) viðbrögð hjá mér.
ef einhver er næstum því búinn að lenda í bílslysi þá fer hann í smá svona panik... ef ég er næstum því búin að lenda í bílslysi þá finnst mér það fyndið... mér finnst næstum því allt fyndið.
oft geng ég of langt í gríninu og kem með húmor á stundum þar sem gleði og hlátur á ekki við. þá finnst fólki ég óviðeigandi. og ég get ekki tekið þetta tilbaka. of seint. ekki hægt að spóla til baka og taka yfir þetta atriði. svoleiðis gengur það bara í bíómyndunum. og í back to the future. sem er bíómynd.

en ég og god áttum gott spjall (já ég er ennþá að tala um guðjón, ekki guð... ég tala ekki við guð (ekki það að ég sé eitthvað bitur út í hann og sé í fýlu við hann og tali þess vegna ekki við hann heldur bara trúi ég ekki á hann og sé enga ástæðu til þess að tala við eitthvað sem ég trúi á, það væri eins og að ímynda sér að einhver væri einhvers staðar og tala við loftið... eins og að tala við vegg... tilgangslaust)). við erum bæði hress og jolly og höfum það gott. gott. have it good. fraybayrt.

en ég er ekkert þreytt lengur. komin á varaorkuna eins og reginn segir (komum að því síðar). ég veit samt ekki hvort það er málið. ég vaknaði fyrir tólf og hálfum klukkutíma eftir sextán tíma svefn... en ég svaf samt svo lítið um helgina að það getur svosem alveg vel verið að ég sé orðin alvöru þreytt. og þurfi svefn... og sé orðin það þreytt að ég sé komin á varaorkuna. en núna finn ég samt svona "ég er geegt þreytt en get ekki sofnað"... ég held það sé merki um varaorkuna.

nú komum við að varaorkunni. rain (reginn) var að segja mér að þegar maður er orðinn alveg sjúklega þreyttur þá klárar maður bara orkuna... þá kemur svona klukkutími þar sem maður er á milli svefns og vöku... alveg kexruglaður. hugsanirnar ótrúlega sljóar og þannig... svo kemst maður á varaorkuna. þá þarf maður alveg svefn og er alveg þreyttur, en af því orkan er komin í gang og maður er orðinn pínu aktívur aftur þá er erfitt að sofna. líkamanum finnst ekkert að hann eigi að fara að sofa.
meðan á þessu stendur brennir maður miklu. sem er mjög gott. ég ætla semsagt aldrei aftur að sofa. bara brenna og brenna. án þess að þurfa að hafa fyrir því. þess vegna er guddi svona mjór. og sennilega sveinn þorri líka. þetta eru menn sem sofa mjög óreglulega. og borða ekki hollt.

óléttir unglingar eiga að fara í fóstureyðingar. <- þetta var speki í boði stefaníu. hún var ekki að neinu tilefni.

bless kex.
vá hvað það eiga margir erfitt. á ótrúlega mismunandi vegu. erfitt að eiga erfitt. þá tekur maður eftir þeim sem eiga ekki erfitt og óskar þess að vera í þeirra sporum. það get ég allavega ímyndað mér - þar sem ég veit ekkert um það - þar sem ég á ekki erfitt.

þeir sem eiga ekki erfitt hugsa samt ábyggilega lítið um erfiðleika annarra. ég efast um að nokkur hugsi um erfiðleika annarra. ekki heldur þeir sem eiga erfitt. þeir einblína mjög líklega bara á sín vandamál. flestir einblína bara á sín vandamál. eina ástæðan fyrir því að nokkur vill vita annarra leyndar skástrik vandamál er ábyggilega sú að geta slúðrað um þau.

á þessari stundu dettur mér helst í hug ótrúlega sjálfhverfar litlar gelgjur með folk.is heimasíðu, bloggandi um sæda sdráginn sem þær sáu í kringlunni og eltu uppi flissandi þar til hann sneri sér við og bað um númerið þeirra.
í einni meðalstórri færslu hjá þeim eru sennilega fimmhundruðþúsund púnktar (þá á ég við svona punktalínur sem innihalda svona fimm púntka hver (a.m.k.)) og fimmhundruðþúsundogeinn broskall skástrik blikkukall skástrik fýlukall skástrik einhvern annan kall sem gefur í skyn hvað þeim fannst um það sem þær voru að skrifa.
þeirra stærsta vandamál er sennilega hvernig þær eiga að fara að því að útvega sér fimmtánþúsund kallinn fyrir dísel buxunum sem þær sáu í sautján.

ég vildég væri fugl.

mánudagur, ágúst 02, 2004

æje ithaiggi. (æj ég veit það ekki - með regins stíl)

núna er ég allsvaðalega ánægð með þessa helgi. gærkveldið var kostulegt og ég er megalomaniac ánægð með myndirnar sem ég tók. tók ekki myndir af öllu sem ég hefði viljað taka myndir af, en ég tók myndir af mörgu mjög skemmtilegu. til dæmis manni í jónspotti á adamsklæðunum með rós í hönd. það er nú skemmtilegt. *heiðursorða.
því miður var það samt ekki sverrir. ég náði engri mynd af honum í færri klæðum en maður á að vera í... náði bara einni af honum og þá var hann í fullum klæðum, meira að segja með úlpu og húfu líka.

ég og sunna áttum mjög erfitt með að koma okkur út í gær. við vorum gersamlega myglaðar fastar við náttfötin okkar og þægilega rúmið mitt (sem er reyndar ekki svo þægilegt) og með augun saumuð föst við sjónvarpsskjáinn sem varpaði frá sér friends þáttum.
um tvöleytið að nóttu til (eftir þá aðeins fimm tíma vöku) komum við okkur svo loks út fyrir hússins dyr (hússins dyr minnir mig geðveikt á mús. bæði því mús rímar við hús og því mús er dýr sem er eins og dyr nema með kommu yfir ypsiloninu). þá lá leið fyrst og fremst að kaupa mat fyrir sunnu og nýja filmu í myndavélina mína.
núogöh fórum uppí ka og gengum þar framhjá dyraverði sem hleypti okkur fyrir það eitt að við erum svo sætar að annað er ekki hægt. nei grín. en ég fékk drullutussu stimpil framan á hálsinn á meðan flestir fengu sinn á hliðina á hálsinum sem hægt er að fela með hári. sem er mun betra en framaná. það er ljótt. þetta er samsæri.

ég vil einstaklega mikið þakka loga fyrir góða tíma og örlæti. logi fær eitt stykki af hinum eftirsóknarverðu heiðursorðum skræbótts kræklings fyrir þetta, þrátt fyrir að ég hafi brennt mig á bæði efri og neðri vör. *heiðursorða.

kveð ykkur í enn eitt skiptið með tónum frá göns end róses - nóvemberein. fokk gott lag sko. mæli innilega með því að þeir sem ekki eiga það til áheyrnar hvar sem er og hvenær sem er útvegi sér það á einhvern hátt.
en bless kex.

sunnudagur, ágúst 01, 2004

obbosí. þetta vissi ég. í gær (fyrr í dag (bara áður en ég fór að sofa)) þegar ég bloggaði þakkaði ég nokkrum fyrir kvöldið. ég hafði það á tilfinningunni að ég væri að gleyma einhverjum. ég ætla að þakka fleirum:
- björk - fokkin víæpí kærasti! hehe. redder. en þú ert annars nóg, þarf ekki kvöld af skemmtun til að þakka þér.
- þómundur - fyrir að lána jóni tveggjatonna sundlaug til að setja í bakgarðinn sinn.
- auðbjörg - fyrir að byrja kvöldið á ágætis stemningu.

ég er aftur að gleyma einhverjum. skrú ðeeeett æ dónt keeer. baðker. grín.

ég fór að sofa klukkan tvö í dag og vaknaði níu. ég er með vöðvabólgu. það er ömurlegt. ég er líka stíbbluð í nebbanum og með nefrennsli á sama tíma. það er ömurlegt.

reginn er með frjókornaofnæmi (alveg eins og ég) og hann hnerraði án efa tíu sinnum í dag. eða það er smá efi, en efinn nær ekki lengra en það að það gæti hafa verið átta sinnum, en án efa ekki minna en átta sinnum. það er þétt eins og pottur. en það var allavega mjög fyndið að horfa á hann hnerra átta til tíu sinnum. hann og magnús héldu að það væri sextíu prósent fullnæging í hnerra. já... Í DRAUMAHEIMI fíbbl. nei grín. jæja ég er farin að skemmta mér meira í geira skemmtunar.

bless kex (kex verður bráðum viðurkennd kveðja. eins og bæ).
jæja krakkar mínir.

verslunarmannahelgin rúmlega hálfnuð. búin að vera ágæt. sunna dís mætti til mín thugged out á föstudeginum, eða föstudagskvöldinu. djaaaamm alla helgina. megalomaniac jammin with bob marley and crew.
enginn svefn hefur átt sér stað í mínum haus ennþá... ég mætti bara í pottastemmara... henti mér útí í öllum fötunum. það var mega. ekki öllum samt, leðurpilsið mitt fékk að hanga á stólnum við hliðina á pottinum og líka leðurjakkinn minn. restin fékk að blotna. þrusu.

ég er fokktopp þreytt.

vil þakka nokkrum fyrir frábæra helgi:
- sunna dís - mætari. takk fyrir að keyra bara útum aaaallt. takk fyrir pizzuna. thank you for me.
- guðjón - autt hús. megadjammari, yndi.
- reginn - mætari. tattúsvalari. næturþraukari. pottaskemmtari.
- jón heiðar - garðaeigandi með frábærum potti. excellent gestgyafe. bolalánari vegna blauts bols.
- dagný - fyrst og fremst snemmheimfari vegna kærasta, en dagný samt sem áður. það er nóg :*

góða nótt. ég ætla að fara að leggja mig smá. undirbúa mig fyrir áframhaldandi djamm. pottateiti aftur í kvöld. ekki með heitum potti heldur bara nokkrir pottar til að elda í til í þessu húsi. nei grín. ok blæ.
 

© Stefanía 2008