föstudagur, júní 11, 2004

ég var að fatta að ég fokksjitt gleymdi að setja arnar inná linkana mína. fyrirgefðu arnar sædi. því hefur hérmeð verið bætt úr.
bless dúllurassgöt. (hehe fyndið að setja rassgat í fleirtölu...)
get ekki einbeitt mér að neinu! skrapp út í miðju bréfi til lalla kallsins, fór með auði að rúnta maður. auður er mega. svo kom ég heim og akkúrat þegar ég labbaði inn í herbergi var sex and the city að byrja. auðvitað verður maður að glápa á það, fylgir hverju fimmtudagskvöldi. hluti af ástæðunni fyrir því að ég féll á síðasta söguprófi... því það var líka á föstudegi, eins og upptökuprófið sem ég er að fara í á morgun. núogöh já á eftir því kom þriðji og síðasti hluti framhaldsmyndarinnar eða þáttarins sparkhouse, sem ég hef auðvitað fylgst með frá byrjun. rosalegur þáttur. get ekki mælt með honum núna því hann er búinn og þá væri ég bara að svekkja lesendur skræbótts kræklings.
eftir að sparkhouse kláraðist settist ég fyrir framan þennan heittelskaða tölvuskjá og lauk við bréfið til háttvirts rektors menntaskólans við hamrahlíð. það var mega. þetta er sleikjubréf... kannski kemur það mér inní mh, hver veit?
fokkin eij.

jæja núna ætla ég að setjast aftur við söguglósurnar hennar auðbjargar. hún lét mig fá megaglósur úr sögu 203! takk auðbjörg! *heiðursorða.
ég þurfti að gefast upp á þessu í nokkrar mínútur því augu mín og hugur leituðu sífellt eitthvert annað en að þessum blöðum og upplýsingum þeirra.

ég vildég væri fugl núna... þá gæti ég flogið yfir akureyri, í gegnum skýjabakkann sem liggur frá botni hlíðarfjalls og næstum því uppá topp, og svo sest uppá toppinn á hlíðarfjalli. svo jafnvel ef mér væri hugur á þá gæti ég bara flogið til reykjavíkur og leitað ásta minna þar.

nei já þetta er nóg. bless kex.

pé ess, toppur er geggjað orð. *heiðursorða.

pé ess tvö, sífellt er líka geggjað orð. *heiðursorða.

pé ess þrjú, mér finnst ennþá geggjað að gera fullt af feitletruðu...

takk fyrir.

fimmtudagur, júní 10, 2004

fokkin eij! svo stressuð... er að skrifa lárusi h. bjarnasyni, skólameistara mh, bréf. grátbiðja hann að taka mig inn á næsta ári! ég veit ekkert hvað ég er að gera... á ég að vera hér eða fara suður?
ég kemst ábyggilega ekkert inní mh útaf drullueinkunnum! æji fokking fokk... svo kemur umsóknin auðvitað of seint suður. of seint í mh. oh. jæja.
bless kæru kannski sambæjarar næsta árs...
áhugamál: drekka blásýru úr bláu glasi
rúmmál: mikið
alvarlegt mál: getur drepið
einkamál: for you to know and me to find out (eða?)
tungumál: íslenska og steffýska (ekkert til hjá mér sem heitir vitlaust málfar, aðeins annað tungumál)
mál: blátt glas
bob marley: var góður tónlistarmaður

þriðjudagur, júní 08, 2004

ég er búin að komast að því að það hugsa flestir svona svipað áður en þeir fara að sofa. einhverja atburðarrás. annað hvort velta sér uppúr einhverju asnalegu/fyndnu/vandræðalegu sem gerðist yfir daginn eða hugsa fram í tímann hvernig allt gæti verið... sem er algengara.
maður ímyndar sér svona aðstæður sem maður er í, en það er þarf margt að vera búið að gerast til að maður komist í þessar aðstæður... ímynda sér kannski hvernig það væri ef maður væri með þeim sem maður væri hrifinn af... eða jafnvel sem maður er ekki hrifinn af en fer allt í einu að hugsa svona...
eða kannski framtíðin eftir nokkur ár... einhver búinn að klára skólann og farinn að vinna eða eitthvað... stundum þyrfti svo margt að gerast áður en atburðarrásin sem maður er að ímynda sér gæti átt sér stað og stundum er það óraunverulegt... en samt er atburðarrásin raunveruleg...
þetta er ég búin að heyra... :) þetta er skemmtileg pæling.
brjáluð. já ég er brjáluð. var að bæta einhverjum myndum inná myndasíðuna mína... en það fór allt í hakk. blandaðist allt saman og blabla! núna er ekkert skipulag á þessu... ohh það er ömurlegt. ég nenni ekki svona vitleysu.
ég ætla bara að sameina þetta allt saman. en ég get það ekki núna því allt koxaði. fokkíng fokk. jæja.
bless kex.
þetta er skemmtileg mynd. bara málað á götuna. fokktopp sjitt.
veij núna eru photos.heremy.com síðurnar farnar að virka aftur eftir langa dvöl. þá get ég farið að stela myndum frá öðrum og setja þær inná mína myndasíðu. sem er náttúrulega þokkafullt þó það sé stuldur.

þungu fargi létt af brjósti mínu eins og er. ég léttist ábyggilega um svona fimm kíló bara við þetta eitt... frábært. *heiðursorða.
fokksjittfokksjitt
you want what you can't have. þannig er nú bara málið!

mánudagur, júní 07, 2004

koxaði á frönskuprófinu. ömurlegt. næ væntanlega þessum áfanga en leiðinlegt að fá lágt þegar ég hefði getað fengið hátt með því að skoða aðeins námsefnið í gær... en nei ok frábært... fokkin eij.
besta setning í heimi:
bara kúr - er á túr!
hahahahahaha. eitthvað fyrir ykkur strákana til að segja við stelpurnar ef þið viljið ekkert meira en kúr... þetta er góð afsökun.
(fyrir fólkið sem er með alvöru húmor og fattar þá ekki svona ömurlegan þá var "strákana til að segja við stelpurnar" brandari ekki prentvilla.)

takk fyrir bless.
 

© Stefanía 2008