mánudagur, júní 07, 2004

prófíll. próf fíll. ég er próf fíll! og ég er með ljótan prófíl líka. það ílar líka í prófunum mínum. fokkin eij.
mmm súkkulaðið utan um rjómakúlur frá nóa síríusi er svo gott!
ég er að drulla á mig úr þreytu! þó ég hafi sofið í þrettán klukkutíma og það séu bara tíu síðan ég vaknaði! ég á eftir að vaka í marga í viðbót... og fara í frönskupróf. ég nenni því nú ekki sko.
gleðifréttir. ég er búin að fá útúr fimm fögum. veit ekki hvort ég er búin að telja einhver af þeim upp hér, en here goes:
líffræði: fimm
íslenska, eðlisfræði og íþróttir: sex
enska: átta

mmm þess má geta að ég mætti í líffræðiprófið algerlega ólærð. vegna þess að ég hélt að ég væri að fara í eðlisfræðipróf og komst ekki að því að það væri líffræðipróf fyrren fimm mínútum fyrir prófið. það var nú gaman! :)
ég mætti nánast ólærð í söguprófið og þar hef ég ekkert fylgst með í vetur... fyrir prófið var það eina sem ég gerði að lesa einn sjötta af bókinni... enda held ég að ég hafi fallið. það finnst mér alls ekki gaman...
ég er að fara í þetta frönskupróf á morgun og ég veit að ég fell ekki í þessum áfanga... en mig langar samt að fá hátt og ganga vel en þá þarf ég samt að læra smá og ég bara nenni því engan veginn sko.
þess í stað ætla ég að sitja hérna og vera á leiðinni að fara að læra alveg þangað til að prófið byrjar og þá fer ég í það og segist ekkert hafa lært... eins og ég geri nú bara langoftast. ég lærði nú samt smá hjá dagný áðan. en sá tími fór nú bara mestmegnis í hlátrasköll og stelpumál... smá kelerí auðvitað líka... uuu...

jæja góða nótt fólkafíbbl.

péess. nei ég geri ekki mikið af feitletruðu... það er bara svo gaman að gera það (ó mæ gad *fliss* "gera það" *fliss*) og það er svo gaman að lesa þannig! finnst ykkur það ekki? júbb... frábært...
bless kex.

sunnudagur, júní 06, 2004

ég er að tregðast til að skrifa vegna þess að ég veit að ég á eftir að skrifa svo mikið og ég nenni ekki að byrja á því... ég hugsa að ég skrifi bara ekkert allt... svo er svo margt búið að gerast sem maður má kannski ekkert upplýsa á netinu ennþá... en jæja, here goes.

á föstudaginn vory ýdalir! it was rosalegt! allir blindfullir... nei ég hef ekki hugmynd um það. ég fékk ódýrara inná ballið þökk sé lísu! :D veij... hún fékk aukamiða og seldi hann og leyfði mér að njóta þess með henni að hún græddi... svoo góð. takk fyrir það lísa! *heiðursorða.
ég fékk að leika kærustuna hans stebba hiphop! haha... það var stelpa að elta hann útum allt og honum fannst hún ljótasta stelpa sem hann hafði augum litið (sem hún var ekki en svona eru strákar) þannig að ég fékk þann heiður að leika stelpuna sem átti að fæla hana frá honum! í leiðinni sleikti ég puttann hans og fékk sýkingu í hálsinn... hann er nefnilega eiturheitur! hahaha... jæja. takk fyrir það stefán! *heiðursorða.
símanum mínum var stolið! fokkin eij sko... hann var í vasanum mínum þegar ég fékk bílfar frá tjaldsvæðinu og yfir á ballið. svo hengdi ég jakkann minn upp þegar ég ætlaði að sækja símann í vasann á jakkanum síðar um kvöldið var hann horfinn! sökum þess náði farið mitt heim ekki á mig og ég skildist eftir :) stuð. en það var allt í lagi vegna þess að það var gaman þarna! fokkin eij. *óheiðursorða til þjófsins.

jæja... svo fór hitt farið mitt heim... án mín. því vinkona mín tók með sér voðavoða sædan sdrág heim, sem fékk semsagt farið mitt. :) og lyklarnir mínir voru heima hjá þessari vinkonu minni því ég ætlaði að gista þar :D þannig að sædi góði sdrágurinn fékk farið mitt heim og samastaðinn minn heima :D this is fraybayrt. þannig að ég var vitaskuld föst á ýdölum... takk dagný og skúli! je vous aimez! :D *heiðursorða.
ég endaði semsagt á því að sofa í dollí (bílnum hans kristjáns) með kristjáni! það var ókósý... so truthfully. en takk fyrir gistinguna dollí. *heiðursorða.
krissi pissi sagði mér bara ekkert frá þægindunum í bílnum! lét mig fá eitt þunnt, skitið flísteppi og lá svo sjálfur með eins flísteppi og svefnpoka yfir sér og góðan kodda undir hausnum! þegar ég vaknaði daginn eftir (eða eftir ca. þrjá klukkutíma, sem mér fannst einungis vera svona 20 mín. því ég vaknaði í NÁKVÆMLEGA sama ástandi og ég var þegar ég sofnaði... jafnþreytt og jafndrukkin og svona skemmtilegt, nema bara verr sett í öllum vöðvum líkamans og þá sérstaklega hálsinum) þá fann ég rosateppi afturí! en kristjáni yfirsást að segja mér frá því! frábært kristján, takk :D *heiðursorða.
svo var ég að segja skúla og dagný frá þessu og þá upplýsti skúli mig um enn frekari þægindi í bílnum... hann var víst líka með ýmislegt í bílnum sem kristján gleymdi að segja mér frá. þá má telja upp: svefnpoka, kodda, flíspeysu og svo framvegis... enn meira takk kristján :D svo skarpur. önnur *heiðursorða.

en já okey fokk fokk ógeð! ókey fokk... það er óóógeðslegur kamar á þessu tjaldsvæði! hahaha... og þegar ég fór á klósettið um hádegi (þess má geta að auðvitað settist ég ekki á setuna - eins og stelpum er einum lagið - heldur stóð ég í svona 120 gráðu hnjáboga yfir klósettinu - sem einnig er stelpum einum lagið - og lét reyna á læravöðvana... þið hefðuð gert það sama hefðuð þið séð klósettið), eftir góðan svefn í dollí, þá tók við fögur sjón inná klósetti... ójá ég sá smokkabréf... og smokk... og poll sem hafði lekið útúr smokknum. ÓJÁ SÓÐAR! fokkin EIIIJJJ... mmm þetta var frábært... og olli mér hugarangri hehe. hver ætli hafi verið að verki á þessum sótthreinsaða stað? allavega. takk fyrir það góða sóða fólk. *heiðursorða.
svo auðvitað var leiðinni heitið heim. þar sem kristján var ekki beint ökufær, keyrði hún sólveig ása okkur heim. skiptinemastúlka hahaha... *skjót*. *heiðursorða.
sólveig er brjálaður ökuníðingur! fokkíng fokk... mér hefur verið sagt að ég sé slæm, og fólk hefur orðið brjálað útí mig vegna þess að ég tek öðru hverju óþarfa áhættur. en ég kemst ekki með tærnar þar sem sólveig ása hefur hælana! það get ég sagt. sem dæmi má taka að við vorum að keyra niður víkurskarðið! sem er beygjóttur vegur og svona brattur *geraótrúlegabrattmeðhendinni*. það er semsagt ekki hægt að sjá langt framundan og það er auðvelt að keyra útaf og drepast þarna... samt sem áður ákvað sólveig ása að taka fram úr þremur bílum og vörubíl í einu á leið sinni niður víkurskarðið! fokkin eij segi ég nú bara! :D takk fyrir þetta sólveis ása. önnur *heiðursorða.

nú hef ég ekki meira að segja um ýdali. en ég vil þó segja þetta í tilefni umræðu bergþóru á blogginu sínu, ég held að versta starf í heimi sé að þrífa kamarinn á ýdölum. jább. *heiðurorða til þeirra sem þurfa að þrífa hann.

í gærkvöldi fór maður svo bara í spjallið með hólmfríði helgu og svo í kökupartý til dagnýjar og svo á karó með lísu, dagný, erlu, rönnu og hildi. raggi og gústi mættu svo og skemmtu okkur konunglega (allavega mér og dagný) með frábærum bröndurum sem allir setja í flokk sem ömurlegur handboltahúmor. en ég er svooo ósammála! allir þessir brandarar eru eins og sagðir beint frá mínu hjarta hehe... ég er semsagt búin að finna "húmorsflokkinn minn" og allir segja að hann sé ömurlegur... hehe þetta kemur á óvart. ég og dagný höfum aldrei heyrt að við séum með ömurlegan húmor þannig að þetta er vitaskuld mjög mikið sjokk... uuu nei.

svaf í nótt frá sex í morgun til sjö í kvöld, þeir sem eru á náttúrufræðibraut sjá að þetta eru þrettán klukkustundir... það var gott... kominn tími til langs og góðs svefns... tveir tímar á miðvikudaginn, þrír eða fjórir á fimmtudaginn og þrír í bíl á föstudaginn. núna líður mér vel. en ég væri til í nudd.

jæja. hetjur sem komust alla leið hingað í lestri. afsakið bloggleysið. núna kom vænn skammtur sem bætti upp fyrir þetta. veij.

takk fyrir bless kex.

föstudagur, júní 04, 2004

jææææja... söguprófið búið! fall... ég spái falli. fyrsta fall í sögu menntaskólans... haha tvírætt... en passar bara á annan háttinn... fyrsta fallið mitt í sögu í menntaskólanum...
fékk átta í ensku og sex í íslensku. en ég er farin í sýnipróf og kveðja björk með pomp og prakt! hún ætlar að yfirgefa okkur í mánuð fyrir sinn heittelskaða sem býr í amsterdam eins og er.

fimmtudagur, júní 03, 2004

ég finn ekki fyrir þreytunni sem ég veit að er samt til staðar inní mér! ég er búin að vera of ofvirk... samt ekkert ofvirk! en svona æst... að tala... og hugsa og þannig... þannig að núna gæti ég ekkert sofnað! ég er búin að vera að hugsa svo mikið undanfarna viku eða svo að ég ligg alltaf andvaka. það er fokkíng vesen. fáró. er kannski að drepast úr þreytu en ligg bara! what rugle is that? i just ask... núna til dæmis er ég óþreytt en augun mín eru að tárast og sálast útaf svefnleysi. svo sést það undir þeim líka... vantar alla fyllingu fyrir neðan augun mín... kinnarnar byrja neðar en vanalega vegna baugamagns... og það er ekki bara litur! heldur hola! it goes not i tell you.

tileinka þessa færslu november rain - guns and roses. frábært lag. hlustið á það þegar þið lesið þetta. og ef þið eigið það ekki þá skuluði ná í það. takk fyrir bless.

miðvikudagur, júní 02, 2004

ég er reið. ég ætlaði að gera mcdonald's stefið skáletrað! svo ég gerði skáletrunarskipunina. og í preview þá kom mcdonald's stefið skáletrað! en á blogginu kemur það feitletrað. fokkíng fávó.
núna eruði kannski að hugsa "ha? hvað er hún að tala um? mcdonald's stefið er hvorki feitletrað né skáletrað!" eða jafnvel "ha hvaða mcdonald's stef?". nú skal ég gera við hugarangur ykkar og útskýra ástæður beggja vangaveltana.
fyrri: skáletrað gekk ekki og ég vildi ekki hafa feitletrað svo ég hafði það bara venjulegt.
seinni: mcdonald's stefið er í færslunni fyrir neðan!

NÚNA ER INGA BÚIN AÐ EIGA AFMÆLI! til hamingju með afmælið inga vala!
sjitt! ég var að horfa á boston public! ég grenjaði úr mér augun... neinei þau eru ennþá á staðnum... en sængin mín er blaut af tárum! ég get ekki farið að sofa strax því hún þarf að þorna... hehe. emotional wetness. skemmtileg orðasamsetning.

barabbabbabbah i'm lovin' it! i'm lovin' it i'm all over place you can get this taste and i'm lovin' how it tastes. mcdonaaaaaald's. barabbabbabbah i'm lovin' it!

eftir sjö mínútur (þegar þetta er skrifað) á inga vala afmæli! ó já thugs. til hamingju með afmælið inga vala! bráðum verður nafn þitt gert opinbert á muninn.is!

ég nenni ekki að fara að læra! ég nenni því ekki! ekki... ekki... ekki... ki.
á föstudaginn: ÝDALIR! allir að mæta... megastuð!
ég og dagný höfum sennilega tekið þá ákvörðun að fara ekki inn heldur standa fyrir utan og skemmta okkur með dauða fólkinu sem er að æla... hehehe. en til öryggis, ef það skyldi verða of leiðinlegt eða of kalt úti, þá ætlum við að taka með okkur péning. ég hvet alla eindregið til að mæta og skemmta sér konunglega í tilefni þess að þá er bara eitt próf eftir! það er lífshættulegt.

jæja... best að fara sofa eða eitthvað. bless kex.
þetta "bein tilvísun" (eða trackback) krapp... sem er þarna við hliðina á áhugadraslinu (eða comments)... það er ekki bein tilvísun frekar en að hlíðarfjall sé snjósnautt núna... það kemur bara eitthvað einhver gluggi með einhverju urli fyrir gluggann sem opnaðist og fyrir neðan það stendur "No trackback references for this post"! þannig að þegar maður klippir urlið úr þessum glugga og límir það í vefskoðarann (eins og margir (þ.á.m. ég) myndu gera áður en þeir læsu almennilega hvað stæði (þ.e.a.s. að fyrir ofan urlið stæði "Trackback URL for this entry:" og fyrir neðan það stæði "No trackback references for this post")), gerist ekkert nema bara að allt sem stendur í glugganum birtist í vefskoðaranum! sem er ekki bein tilvísun í færsluna sem "bein tilvísun" stendur neðan við. fokkíng dýrafjandi.
ég pissa á svona rugl.

þriðjudagur, júní 01, 2004

veij sannleikurinn rataði til mín.
ég hef lengi velt því fyrir mér hvort það sé ý eða í í ýdölum. ég hef núna staðfest það að það er ý í ýdölum!
hér kemur sönnunin fyrir því:

Félagsheimilið Ýdalir
S. 464-3588
Kt. 470781-0179


gott að vita.
SJITTÍFOKKÍNGSJITT hahahaha...
hmh ok... ég lærði mest lítið fyrir þetta eðlisfræðipróf sem ég var að fara í í dag... en þurfti líka bara að fá 2... en jæja ok. ég mætti uppí skóla fimm mínútum fyrir próf, og fékk að vita að ég væri að fara í líffræðipróf en ekki eðlisfræðipróf! hahahaha ég lærði fyrir vitlaust próf. hversu misheppnaður getur maður verið?
ég leit á próftöfluna, fyrir fyrsta prófið mitt (sem var íslenska á síðasta fimmtudag), og lagði hana á minnið. hún hefur greinilega brenglast eitthvað í hausnum á mér, vegna þess að ég var alveg handviss um að ég væri að fara í eðlisfræði í dag og líffræði á fimmtudaginn, en rétt fyrir prófið í dag komst ég að því að það var öfugt! en frábært steffý frábært! *heiðursorða.
jæja ég fór bara í prófið og gerði mitt besta... ég fæ ýmist 4 eða 5... það kemur í ljós. ég vonast eftir fimmu vitaskuld, og það er alveg séns... sérstaklega vegna þess að frímann er svo ólíklegur til að fella held ég... en hvað veit ég... it will all come in light my friends.

namm bubbi. skál fyrir bubba. ég lá í rúminu mínu í einn og hálfan klukkutíma í nótt, með fjólublátt flauel á repeat, starandi í loftið og hugsandi! og í gær þegar ég var hugsandi held ég að ég hafi náð tökum á því sem sveinn þorri reyndi lengi að segja mér að væri hægt en ég mótmælti, að stara eitthvert og hugsa ekkert... allavega tókst mér það inná milli held ég... en með ekkert á ég samt við bara að hugsanirnar voru bara svona geðveikt djúpt inní og ómeðvitaðar að maður fattaði ekki að maður væri að hugsa þær...
en já þetta lag, fjólublátt flauel, er svo fallegt lag að ég fæ svona þungt fyrir hjartað og fiðring í magann þegar ég hlusta á það... yndislegt.

have it good alligators.
JÆJA krakkar mínir! núna er ég búin að setja upp myndasíðu! veijveijveij. hún er http://public.fotki.com/steffybo. en í linkunum er bara linkað inná undirsíður... kannski ég setji einn aðalsíðulink... hver veit ekki? comes in light my friends...
en núna ætla ég kannski að fara að sofa. því að það er eitthvað drullupróf á morgun. það er úr einhverju sem heitir eðlisfræði... hver veit hvað það er? tengist kröftum og vigrum og svona skemmtilegheitum.
ég þarf bara að fá 2 í þessu prófi af því að þetta er tvískiptur áfangi og meðaltalið af önnunum gildir sem lokaeinkunn... og þar sem ég fékk 8 á fyrri önninni þá duga tveir mér til að ná. frábært. ætli ég nái tveimur stigum? ja maður veit ekki.

en góða skemmtun.
 

© Stefanía 2008