þriðjudagur, maí 11, 2004

hmh. betri dagur í dag en í gær. dagur eymdar samt sem áður. vandræðalegt augnsamband í skólanum í dag. ótti við að fara á karó vegna hættu um vandræðalega dvöl.

en hver nennir að velta sér uppúr þessu? læra af mistökunum ekki velta sér uppúr þeim.

ég vildi að ég gæti haft myndasíðu hérna. það væri gaman. en ekki ætla ég að fá mér folk.is blogg. fyrr hengi ég mig.
hvílíkt æði sem hefur riðið akureyri. það eru allir komnir með blogg. ótrúlegasta fólk kemur sér upp folk.is bloggi.
fyrst þegar þetta æði byrjaði þá voru þetta bara litlar gelgjur manni fannst þetta asnalegt... svo mætir fólk eins og reginn, atli, heimir, rakel og aníta, hákon og fleiri með folk.is bloggsíðu. ég veit ekkert hvað ég á af mér að gera þetta er hræðilegt. en nú jæja. þannig var það þá og ekki meira um það í bili.

á eftir er ég að fara í munnlegt próf í frönsku hjá erni þór. hann er soldið fyndinn. ég er búin að búa ti textann sem ég þarf að lesa en núna ætla ég að fara að setja hann niður á snyrtilegan og skiljanlegan máta.

bless kex.
þetta var nú hressandi. steinþóra takk fyrir að hringja. kristján og lísa takk fyrir góða uppástungu. kristján takk fyrir góðan samakstur. ótrúlega góð leið til að losa pressu þetta uppátæki. oddur takk fyrir að vera ljúfur. bjöggi takk fyrir að sætta þig við ruglið í mér.

það er ekkert ógeðslegt við að sitja í sófa sem stendur úti allan ársins hring! þó hann sé kaldur og rakur.

þetta lagast er nýtt lífsmottó. time heals all wounds, eins og einhver gáfumaðurinn sagði.
svo var það pottþétt einhver fullur gaur sem sagði þetta í einhverri bíómynd eða eitthvað og allir tóku það bara geðveikt alvarlega og þetta er bara einn allsherjar misskilningur. jæja. við skulum bara trúa þessu samt.

bless kex.

mánudagur, maí 10, 2004

sko hvað er að gerast hérna! blogger með brjálaðar breytingar einhverjar! ég veit ekkert hvað er í gangi!

ég held það séu álög á mér varðandi gestabækur... ég hef þrisvar reynt að hafa gestabók á blogginu mínu og þær hafa alltaf hrunið á einhvern hátt... nú sýnist mér að íslensku stafirnir séu eitthvað að koxa í þessari! allavega af síðustu færslu odds að dæma. vonandi er bara eitthvað að hjá honum.

stundum gerir maður hluti sem maður sér eftir af því að maður er í einhverju ástandi þar sem maður ræður ekki við sig og þá er ég ekki að tala um undir áhrifum áfengis. ég held ég hafi verið að lenda í svoleiðis í fyrsta skiptið í gær og vonandi síðasta líka. áhrifin eru eiginlega ennþá að fara af mér og ég vil nota þetta tækifæri til að biðja alla þá forláts á því hvernig ég hef látið, það á ég svosem eftir að gera betur.

takk fyrir að þola mig.

laugardagur, maí 08, 2004

rakel og aníta eru komnar með BLOGG! frábært.
það var mega fega stuð á þessari stemmó femmó árshátíð maður! jeeeah. það gerðist margt og mikið. alltof margt og mikið sem átti alls ekki að gerast. hjá mörgum! útum allt var fólk að gera mistök.
dagurinn í dag er þungur dagur fyrir helming ma-inga býst ég við. neinei kannski svona tæplega... mikið í gangi hér á bæ.

hmh þess má geta að einn stærsti maðurinn í skólanum og mjög lítil ung snót fóru saman heim. ú. takk fyrir.

ég er vond að slúðra á netinu... en þeir sem vita þetta vita þetta hvort eð er og aðrir fatta ekkert því engra nafna var getið.

jæja. takk fyrir mig og bless kex.

pé ess takk fyrir að hafa áhuga á mér.

föstudagur, maí 07, 2004

planið breyttist! veij. mér leiddist ekki í skólanum því það var gaman í tímunum. svo fór ég í frímó og dagný var hress eins og kex. svo mætti ég í íslensku og við áttum að gera leikrit og það var fyndið. svo fór ég heim og fékk mér epli og fór svo í útihlaupaföt og fór svo uppí skóla og tók hlaupaprófið.

ég hljóp tvo kílómetra (eða ég held þetta séu tveir kílómetrar) á 12.33... sem er 20 sekúndum meira en í síðasta hlaupaprófi. sko ef þetta er ekki langur tími til að hlaupa tvo kílómetra á, þá hef ég ekki rétt fyrir mér að þetta séu tveir kílómetrar... því ég var mjög aftarlega í markið :D það var geggjað stuð að hlaupa. nei.

kristján fireiron á afmæli í dag. hann er orðinn sautján ára ungur piltur sem má keyra án forráðamanns í bílnum og græns skiltis sem stendur á "æfingaakstur" aftan á honum. til hamingju með það poop.

nú á ég eftir að fara í sturtu. velja föt. leyfa anítu og rakel að velja boli. svo fer maður á the socials fryde year festival.

jæja bless kex.
hver er þaaaar? héri. héri er þar. héri er hér. hver er hér? héri. héri er hér.

já þá er maður kominn heim af djamminu. neee ég var að plata. ég var ekki að djamma. ég var á karó og svo að rúnta haha þarna tók ég ykkur ærlega í raaassgatið sko. a-hole. ðí eyjhól.

mhm. fara að sofa klukkan eitt. vakna drulluþreytt klukkan korter yfir sjö. vonandi fá bílinn lánaðan til að fara í skólann. fara í skólann og leiðast til dauða af því að það er enginn tilgangur með því að fylgjast með. fara heim í hádeginu og borða eitthvað gott og kíkja á msn. fara aftur í skólann og fara í hlaupapróf en labba því mér er alveg sama hvað ég fæ. fara svo heim stuttu síðar og borða aftur og svo fara á msn eða sofa. biðja svo stjúppabba að fara í ríkið fyrir "hamrahátíðina" (leyniorð yfir félagsfræðiárshátíðina því skólinn leyfir ekki svona sukkerí). fara á félagsfræðiárshátíðina til að kúka. kúka uppá bak. fara svo heim að sofa.

gott plan yes ég hlakka til á morgun. u nei.

jæja. góða nótt loftbelgir.

fimmtudagur, maí 06, 2004

jæja krakkar mínir! núna er ég bara komin með bæði gestabók (seeem opnast í nýjum glugga takk fyrir!) OG kommentakerfi! nú getiði sýnt áhuga ykkar á ruglinu mínu.

ég þori nú samt ekki að gera eins og reginn og stebbi hiphop og biðja ykkur sem lesið þetta að láta vita af því þannig að ég viti hvort ég eigi dygga stuðningsmenn eður ei.
ég er hrædd um að ég myndi fá volga tusku í andlitið (ég segi volga vegna þess að ég býst svosem ekki við því að það séu það margir sem lesi þetta sorp þannig að það yrði ekki jafn mikið sjokk og köld tuska... en leiðinlegt samt sem áður) þegar ég sæi hve margir læsu þennan tólgarbita.

jæja. ég hvet ykkur samt sem áður til að sýna ykkar fögru ip-tölu með því að skrá ykkur í gestabókina mína og kommenta á tuðið í mér.

u jább einmitt það ókey. takk fyrir. bless kex.
aaaa sjitt ég er komin með kommentakerfið maður! jess heppin þið. nú getiði sagt mér hvað ykkur finnst.
núna er ég að vinna í gestabókinni frá alxnet.com :)
taggfyrir
hmh ég var að fatta ástæðuna fyrir því að linkurinn inná síðuna hans stebba sæda sem er kenndur við mjöðm virkar ekki. það stóð óvart hauskúpulag í staðinn fyrir hauskúpuleg. jæja, því var kippt í liðinn. do so well.

núll.
 

© Stefanía 2008